Miðbær suðurhluti. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Lokið

 Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir suðurhluta miðbæjarins, samþykkta í bæjarstjórn þann 29. júní 2010. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.

Deiliskipulagsbreytingin afmarkast af Drottningarbraut í austri, Austurbrú í suðri, Hafnarstræti í vestri og bílastæðum í norðri. Skilgreindar eru m.a. tvær nýjar lóðir. Hafnarstræti 78, þar sem gert er ráð fyrir byggingu veitingastaðar, og Hafnarstræti 80 þar sem gert er ráð fyrir þjónustustarfsemi fyrir bifreiðastöð og sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti. Ný aðkoma að svæðinu verður frá Drottningarbraut.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 7. júlí til 18. ágúst 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Miðbær, suðurhluti - tillaga

Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 18. ágúst 2010 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.                                             

7. júlí 2010
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan