Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Melateigi samþykkta í bæjarstjórn þann 15. september 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Breytingin nær til lóðar nr. 1-41 við Melateig og felur m.a. í sér að Akureyrarbær yfirtekur akstursleiðir, opið svæði og gangstéttar. Innakstur er gerður frá Miðteigi og kvöð er sett um gangstétt og stofnlagnir innan sérafnotahluta lóða.
Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 23. september til 4. nóvember 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og byggingarmál.
Melateigur - tillaga að deiliskipulagsbreytingu
Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 4. nóvember 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
23. september 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar