Malbikunarstöð á Glerárdal. Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi malbikunarstöðvar, samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009.

Deiliskipulagssvæðið er við Súluveg ofan Akureyrar. Afmörkuð er 25.620 m2 lóð fyrir malbikunarstöð Akureyrar. Byggingarreitir fyrir byggingar og tækjabúnað eru skilgreindir á vinnslusvæði lóðarinnar. Á lóðinni er einnig svæði fyrir efnishauga, svæði til geymslu á tækjum og framtíðarsvæði sem kemur til notkunar ef þurfa þykir.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 1. apríl til 13. maí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.

Malbikunarstöðin á Glerárdal - uppdráttur

Malbikunarstöðin á Glerárdal - greinargerð

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem skilgreint er iðnaðarsvæði 3.11.3 I undir malbikunarstöðina. Athugasemdafrestur hennar er frá 1. apríl til 13. maí 2009.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 13. maí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

1. apríl 2009

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan