Lundarhverfi – Brálundur og Daggarlundur. Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Brálundar og nýrrar húsagötu, Daggarlundar, í Lundarhverfi.

Skipulagssvæðið afmarkast af Miðhúsabraut að sunnan og lóðum við Eikarlund að norðan, göngustíg frá Eikarlundi að vestan og Brálundi að austan. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að Brálundur tengi Lundarhverfi við Miðhúsabraut. Einnig er gert ráð fyrir nýrri húsagötu, Daggarlundi, með 16 einbýlishúsalóðum. T

illöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 25. febrúar til 8. apríl 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.

Brálundur og Daggarlundur - deiliskipulagsuppdráttur

Brálundur og Daggarlundur - greinargerð

Vegna stærðar er skýringaruppdráttur ekki aðgengilegur hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 8. apríl 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

25. febrúar 2009

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan