Kynning vegna breytingar á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018

Um þessar mundir er unnið að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Tillagan er gerð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að þéttbýlismörk ofan byggðar á Akureyri, verða færð ofar þannig að meginhluti landnotkunnarreita verði innan þeirra. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, hverfisverndarsvæði á Glerárdal og vatnsverndarsvæði verða utan þess.

Bæjarráð Akureyrar hefur lagt fram skipulagslýsingu til kynningar á aðalskipulagsbreytingunni. Þar koma m.a. fram hvaða áherslur eru ráðandi  við gerð skipulagsins og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu. Lýst er fyrirhuguðu skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.

Skipulagslýsingin liggur frami í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og komið með ábendingar.

Aðalskipulag Akureyrar - Breyting á þéttbýlismörkum

Þeir sem vilja koma ábendingum til skipulagsnefndar er bent á að senda þær fyrir 25. júlí 2012 til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, 600 Akureyri og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

11. júlí 2012

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan