Kjarnaskógur og Hamrar – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir Kjarnaskóg og Hamra skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið afmarkast af mörkum sveitarfélagsins að sunnan, hamrabelti ofan Kjarnaskógar og Hamra að vestan, óbyggðu svæði að norðan og Eyjafjarðarbraut að austan.

Hér að neðan er tillöguuppdráttur ásamt greinargerð sem einnig mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð frá 25. september til 6. nóvember 2013, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

uppdráttur

skýringaruppdráttur

greinargerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 6. nóvember  2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

                                                             25. september 2013                       
                                                  Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan