KA-svæði, Lundarskóli og Lundarsel – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.

Skipulagssvæðið sem breytingum tekur nær til íþróttasvæðis KA við Dalsbraut og lóð Lundarskóla. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að knattspyrnuvöllur sunnan KA heimilisins verði lagður gervigrasi en völlurinn vestan KA heimilisins verði grasvöllur. Göngustígur verður lagður við lóðarmörk Heiðarlunds 8. Gerður er nýr byggingareitur fyrir færanlegar kennslustofur á lóð Lundarskóla ætlaðar leikskólanum Lundarseli.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 26. september til 7. nóvember 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Skipulagsgögnin eru einnig aðgengileg hér fyrir neðan.

Uppdráttur og greinargerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 7. nóvember og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

                                                  26. september 2012
                                                  Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan