Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi KA-svæðisins, Lundarskóla og Lundarsels.
Skipulagssvæðið afmarkast af Þingvallastræti í norðri, Dalsbraut í austri, lóðamörkum við Heiðarlund og Hjallalund í suðri og lóðamörkum við Hrísalund og Tjarnarlund í vestri. Deiliskipulagstillagan gerir m.a. ráð fyrir knattspyrnuvelli og áhorfendastúku á lóð Knattspyrnufélags Akureyrar og á lóð Lundarskóla verður byggingareitur fyrir fjórða áfanga skólans.
KA svæði, Lundarskóli og Lundarsel - deiliskipulagsuppdráttur.
KA svæði, Lundarskóli og Lundarsel - skýringaruppdráttur.
KA svæði, Lundarskóli og Lundarsel - greinargerð.
Tillöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 24. september - 5. nóvember 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 5. nóvember 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
24.september 2008
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.