Innbærinn - Deiliskipulag

Innbærinn - Deiliskipulag
Innbærinn - Deiliskipulag

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að endurskoðun á deiliskipulagi Innbæjarins skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2012.

Deiliskipulagssvæðið nær frá Miðhúsabraut í suðri að Austurbrú í norðri. Það afmarkast af Pollinum og Drottningarbraut í austri og brekkunni ofan Aðalstrætis og Hafnarstrætis í vestri.

Með þessari endurskoðun verður jafnframt fellt úr gildi deiliskipulagið, Fjaran og Innbærinn frá 5. febrúar 1986, ásamt síðari breytingum. Meginmarkmið tillögunnar er að varðveita svipmót gömlu byggðarinnar ásamt því að gefa færi á breytingum á eldri húsum sem stuðli að auknum almennum gæðum svæðisins til íbúðar og athafna. Breytingar frá gildandi skipulagi felast einkum í því að nú eru byggingarreitir skilgreindir á öllum lóðum og nýtingarhlutfall skilgreint nánar. Þá eru einnig sjö nýjar lóðir skilgreindar í tillögunni auk þess sem byggingarreitir eru skilgreindir á þremur lóðum þar sem hús hafa staðið áður.

Skipulagsuppdráttur, greinargerð, skýringaruppdráttur, eigna- og leigulóðauppdráttur og húsakönnun mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 13. júní  til 26. júlí 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Innbærinn - Deiliskipulag - Skipulagsuppdráttur,

blað 1, blað 2, blað 3, blað 4

Innbærinn - Deiliskipulag - Greinargerð

Innbærinn  - Deiliskipulag - Eigna- og leigulóðauppdráttur

Innbærinn - Deiliskipulag - Skýringaruppdráttur

Innbærinn - Húsakönnun

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 þann 26. júlí 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan