Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagsbreytingu hafnarsvæða sunnan Glerár, samþykkta í bæjarstjórn 5. maí 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Deiliskipulagstillagan fellst í því að afmörkuð er 260 m2 lóð, vestan Oddeyrarskála við Strandgötu, með byggingarreit fyrir þjónustuhús fyrir farþegaskip sem leggjast að Oddeyrarbryggju.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 3. júní til 15. júlí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018, skv. 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem minniháttar breyting er gert á afmörkun hafnarsvæðis 2.11.19 H. Athugasemdafrestur aðalskipulagsbreytingarinnar er frá 3. júní til 24. júní 2009.
Hafnarsvæði við Oddeyrarbryggju - deiliskipulagsuppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við deiliskipulagsbreytinguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 15. júlí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
3. júní 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar