Gildistaka deiliskipulagsbreytinga, Rangárvellir, byggingarreitur fyrir spennistöð og Innbærinn, Aðalstræt 66

Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla.
Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 10. ágúst 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Rangárvelli.
Breytingin felur í sér að á lóð Norðurorku er gerður nýr byggingarreitur fyrir spennistöð.

Breyting á deiliskipulagi Innbæjarins.
Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 10. ágúst 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Innbæinn.
Breytingin felur í sér að á lóð nr. 66 við Aðalstræti hækkar nýtingarhlutfall úr 0,086 í 0,17.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. ágúst 2016,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 12. ágúst 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan