Fosshlíð, Mánahlíð, Sunnuhlíð og Barmahlíð. Tillaga að deiliskipulagi - Lokið

 

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með, skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagi fyrir Fosshlíð, Hlíðarbraut, Sunnuhlíð og Barmahlíð, samþykkta í bæjarráði þann 15. júlí 2010.

Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Skarðshlíð að austan, Fosshlíð að sunnan, Hlíðarbraut að vestan og Sunnuhlíð að norðan. Skilgreindir eru byggingarreitir á öllum lóðum og fæst með því svigrúm til að byggja við núverandi hús. Á lóð nr. 8 við Barmahlíð verður heimilt að reisa einbýlishús eða parhús á 1-2 hæðum ásamt bílskúr.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 5. ágúst til 16. september 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Deiliskipulagstillaga - uppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir er til og með fimmtudeginum 16. september 2010 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

                                    5. ágúst 2010
                                    Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan