Um þessar mundir er unnið að gerð deiliskipulags fyrir Fjöruna og Innbæinn í samræmi við skipulagslög nr.
123/2010.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur lagt fram til kynningar lýsingu á skipulagsverkefninu. Þar koma m.a. fram hvaða áherslur eru
ráðandi við gerð deiliskipulagsins og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu. Þá er fyrirhuguðu skipulagsferli lýst og hvernig kynningu og
samráði verður háttað gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.
Skipulagslýsingin mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, svo að þeir
sem þess óska geti kynnt sér lýsinguna og komið með ábendingar.
Fjaran og Innbærinn - Skipulagslýsing
Þeim sem vilja koma ábendingum til skipulagsnefndar er bent á að skila þeim skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar,
Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og
heimilisfang sendanda kemur fram.
F.h. Akureyrarkaupstaðar,
Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.