Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. júlí 2013 samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 –
2018, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkunar á svæði 1.61.3-O, akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal til vesturs og
norðurs.
Tillagan fellur undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla. Tillöguuppdráttur með greinargerð og
umhverfisskýrslu er aðgengilegur hér að neðan og mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og
hjá Skipulagsstofnun, frá 21. ágúst til 2. októbers 2013 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við
hana athugasemdir.
Uppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn til 2. októbers 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til
skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang
sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
21. ágúst 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar