Deiliskipulag fyrir Kjarnaskóg og Hamra

Unnið er að gerð deiliskipulags fyrir Kjarnaskóg og Hamra.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. júní 2013 samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir Kjarnaskóg og Hamra í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagslýsingin mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 3. júlí til 17. júlí 2013 og hér að neðan:

Skipulagslýsing

Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða í tölvupósti: skipulagsdeild@akureyri.is, þar sem nafn, kennitala og heimilisfang kemur fram. Ábendingar þurfa að berast innan tveggja vikna frá auglýsingu þessari.

3. júlí 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan