Deiliskipulagsbreyting KA svæðis, Lundarskóla og Lundarsel - niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. desember 2012 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir KA svæðið, Lundarskóla og Lundarsel.

Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 26. september til 7. nóvember 2012. Athugasemdir bárust og gerðar voru tvær breytingar á skipulagsgögnum eftir auglýsingatíma. Deiliskipulagið hefur tekið gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar. Hverjum þeim sem telur á rétt sinn hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með kæru sbr. 52. gr. skipulagslaga.

19. desember 2012

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan