Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. nóvember 2013 samþykkt deiliskipulag í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
Skipulagssvæðið afmarkast af Kjarnaskógi og lóðum Kjarnalundar til suðurs, óbyggðu íbúðarsvæði til vesturs, gili á
opnu svæði til norðurs og fyrirhugaðri tengibraut á óbyggðu svæði til austurs. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir stækkun
frístundarbyggðar til vesturs.

Tillagan var auglýst frá 4. september til 16. október 2013. Tvær athugasemdir bárust sem tekið hefur verið tillit til.
Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun.
Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til skipulagsdeildar
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
6. nóvember 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar