Deiliskipulag miðbæjar, Drottningarbrautarreitur

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. mars 2012 samþykkt eftirfarandi deiliskipulag: Miðbær suðurhluti – deiliskipulag Drottningarbrautarreits.  Svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkast af Drottningarbraut í austri, Kaupvangsstræti í norðri, lóð Akureyrarkirkju og Eyrarlandsvegi í vestri og lóðarmörkum Hafnarstrætis 65 og Austurbrú í suðri.

Tillagan var auglýst þann 28. desember 2011 og var athugasemdafrestur til 7. febrúar 2012. Auglýsingar birtust í Lögbirtingarblaðinu og Dagskránni, Akureyri. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/skipulagsdeild.  

Athugasemdum sem bárust á auglýstum athugasemdatíma var svarað á fundi skipulagsnefndar þann 14. mars 2012. Ekki var gerð breyting á áður auglýstum gögnum vegna athugasemdanna. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar.

Hverjum þeim sem telur á rétt sinn hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með kæru sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en kærufrestur er einn mánuður frá birtingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan