Búðargil - Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Búðargils, samþykkta í bæjarstjórn 1. september 2009. Deiliskipulagssvæðið nær til lóðar nr. 2 við Sunnutröð í Búðargili.

Í deiliskipulaginu felast nokkrar breytingar frá gildandi deiliskipulagi, m.a. verður hámarksstærð frístundahúsa 185m2 í stað 78 m2 áður. Byggingarreitir B og E stækka. Á byggingarreit A er heimilt að byggja þjónustuhús og frístundahús á tveimur hæðum en hámarkshæð verður óbreytt og byggingarmagn eykst úr 250 m2 í 600 m2. Gistirýmum fjölgar úr 132 í 178 og bílastæðum fjölgar úr 43 í 69.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 2. september til 14. október 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.

Búðargil - deiliskipulagsuppdráttur, tillaga

Búðargil - skýringaruppdráttur, tillaga

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 14. október 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

2. september 2009

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan