Tvær óverulegar breytingar á aðalskipulaginu voru samþykktar og fengið hafa meðferð skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Breyting er gerð á uppdrætti og er sýnd umferðartenging milli Borgarbrautar og Bröttusíðu.
- Breyting er gerð á uppdrætti og er sýnd umferðartenging milli Dalsbrautar og lóðar Lundarskóla og tvær tengingar við
íþróttasvæði KA.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu bæjarráðs, geta snúið sér til skipulagsdeildar, 3.
hæð í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar.