Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar - reiðleiðir, hafnasvæði og íbúðasvæði við Hesjuvelli

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. maí 2013 samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar vegna reiðleiða, hafnarsvæða og íbúðarsvæðis við Hesjuvelli skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breyting er gerð á legu reiðleiða og tengingu þeirra við aðliggjandi sveitarfélög, breytt afmörkun hafnarsvæða og einnig er afmarkað íbúðarsvæði í landi Hesjuvalla.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 12. júní til 24. júlí 2013 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillöguna er hægt að nálgast hér fyrir neðan ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar.

Gildandi aðalskipulag, fyrir breytingu

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi

Athugasemdir Skipulagsstofnunar


Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 24. júlí 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

12. júní 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan