Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. maí 2013 samþykkt að auglýsa samhliða eftirfarandi skipulagstillögur skv. 1. mgr. 36. gr. og
1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breytinging er gerð á íbúasvæði 3.21.1 Íb sem er
stækkað vestur fyrir Kjarnagötu og að golfvelli. Opið svæði til sérstakra nota minnkar að sama skapi.
Tillaga að breyttu aðalskipulagi, uppdráttur og greinagerð
Tillögu að breyttu deiliskipulagi Naustahverfis, svæði norðan Tjarnarhóls. Svæðið sem breytingu tekur afmarkast af Kjarnagötu,
golfvelli og verslunarsvæði Bónus. Gert er ráð fyrir nýrri íbúðargötu og 12 nýjum lóðum alls 36 íbúðum
í stað íþróttasvæðis. Innan svæðisins og austan Kjarnagötu er lóð nr. 8-10 við Hamratún þar sem gert ráð
fyrir 2 fjölbýlishúsum á 2 hæðum, alls 8 íbúðum í stað tveggja hæða raðhúss með 7 íbúðum
áður.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi - uppdráttur og greinagerð
Tillaga að breyttu deiliskipulagi - skýringaruppdráttur
Tillöguuppdrættir ásamt greinargerðum munu liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá
Skipulagsstofnun, frá 12. júní til 24. júlí 2013 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við
þær athugasemdir. Tillögurnar eru aðgeingilegar hér fyrir ofan.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 24. júlí 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til
skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang
sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar innan þessa frests telst vera þeim samþykkur.
12. júní 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar