Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. ágúst 2013 samþykkt eftirfarandi breytingar sem auglýstar voru frá 12.
júní 2013 til 24. júlí 2013:
Aðalskipulagsbreyting vegna reiðleiða, afmörkun hafnarsvæða og íbúðarsvæði í landi Hesjuvalla
Breyting er gerð á legu reiðleiða og tengingu þeirra við aðliggjandi sveitarfélög, breytt afmörkun hafnarsvæða og einnig er afmarkað
íbúðarsvæði í landi Hesjuvalla.
Engar athugasemdir bárust.
Aðal- og deiliskipulagsbreyting í Naustahverfi
Aðalskipulagsbreytingin er gerð á íbúasvæði 3.21.1 Íb, sem er stækkað til vesturs. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af
Kjarnagötu, golfvelli og verslunarsvæði Bónus. Opið svæði til sérstakra nota minnkar að sama skapi.
Þrjár athugasemdir bárust vegna aðalskipulagsins og gáfu athugasemdirnar ekki tilefni til breytinga á skipulaginu.
Fjórar athugasemdir bárust vegna deiliskipulagsins og var tekið tillit til athugasemdar um staðsetningu höggmyndagarðs. Bæjarstjórn hefur afgreitt
athugasemdirnar og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína.
Deiliskipulag vegna athafnasvæðis við Austursíðu
Skipulagssvæðið afmarkast af Hlíðarbraut, Austursíðu, Síðubraut og Hörgárbraut. Í skipulaginu eru m.a. skilgreindir
byggingarreitir, nýtingahlutfall og svæði fyrir gáma á lóðum hverfisins.
Ein athugasemd barst og var tekið tillit til niðurfellingar á kvöð um girðingu á lóðarmörkum.
Skipulagstillögurnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar,
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
28. ágúst 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar