Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 17. apríl 2012 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Blöndulína 3.

Í tillögunni er gert ráð fyrir nýrri háspennulínu, Blöndulínu 3, tengivirki við Kífsá og háspennustrengjum að tengivirki á Rangárvöllum og þaðan að Krossanesi.

Tillagan var auglýst 1. febrúar með athugasemdafresti til 15. mars 2012. Auglýsingar birtust í Lögbirtingarblaðinu, Fréttablaðinu og Dagskránni. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar. Athugasemd sem barst á auglýstum athugasemdatíma var svarað á fundi skipulagsnefndar þann 28. mars 2012. Ekki var gerð breyting á áður auglýstum gögnum vegna athugasemdarinnar.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar.

Hverjum þeim sem telur á rétt sinn hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með kæru sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan