Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. ágúst 2013 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 í samræmi
við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna reiðleiða, hafnarsvæðis, íbúðarsvæðis og opins svæðis.
Breyting er gerð á legu reiðleiða og tengingu þeirra við aðliggjandi sveitarfélög, breytt afmörkun hafnarsvæða og einnig er afmarkað
íbúðarsvæði í landi Hesjuvalla.
Tillagan var auglýst frá 12. júní 2013 til 24. júní 2013. Engar athugasemdir bárust.
Breyting var gerð eftir auglýsingartíma. Gerð var breyting á legu reiðleiða við Miðhúsaklappir, austan hesthúsahverfisins og hætt
við tengingu og reiðleið etir Sörlagötu.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar,
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
25. september 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar