Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Brekkusíðu 7-11 og 14-18.
Skipulagssvæðið afmarkast af lóðum nr. 7-11 og 14-18 við Brekkusíðu. Hámarksbyggingarmagn grunnflatar innan hverrar lóðar verður 180m2 og nýtingarhlutfall 0,45. Almenn bílastæði fyrir framan hús nr. 16 eru færð um 1m til suðurs.
Tillöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 25. mars til 6. maí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Brekkusíða 7-11 og 14-18 - Deiliskipulagsuppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 6. maí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
25. mars 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar