Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Brálundar, samþykkta í bæjarstjórn 16. febrúar 2010.
Þann 18. nóvember 2009 var hluti samþykkts deiliskipulags felldur úr gildi með úrskurði Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Tenging Brálundar við Miðhúsabraut var felld úr gildi og er hringur dreginn um svæðið á uppdrættinum. Með þessari breytingu á deiliskipulaginu, sem nú er gerð samhliða breytingu á aðalskipulagi, er aftur gert ráð fyrir tengingu Brálundar við Miðhúsabraut.
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, breytingar á gatnakerfi skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdafrestur er frá 17. mars 2010 til 28. apríl 2010.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 17. mars 2010 til 28. apríl 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.
Brálundur, uppdráttur - tillaga að deiliskipulagsbreytingu
Skýrsla um hljóðstig við Miðhúsabraut
Tenging Brálundar inn á Miðhúsabraut - minnisblað
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 28. apríl 2010 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
17. mars 2010
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar