Auglýsing um niðurstöðu bæjarstjórnar í skipulagsmálum

 

Auglýsing um niðurstöðu bæjarstjórnar í skipulagsmálum

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 15. október 2013 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna Kjarna, Hamra og Götu sólarinnar og Akstursíþróttasvæðis á Glerárdal.

 

Kjarni, Hamrar og Gata sólarinnarasak

Breytingin felur í sér að svæði fyrir frístundabyggð(3.21.16-F) er stækkað
til vesturs, svæði fyrir frístundabyggð (3.21.17-F) fellur út og opið svæði
til sérstakra nota, Tjaldsvæðið að Hömrum (3.41.4-O) stækkar til norðurs.

 

Tillagan var auglýst frá 14. ágúst til 25. september 2013. Ein athugasemd barst. Bæjarstjórn hefur afgreitt athugasemdina og sent þeim sem gerðu athugasemd umsögn sína. Athugasemdin gaf ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Akstursíþróttasvæði á Glerárdal

aksturs

Breytingin felur í sér að opið svæði til sérstakra nota (1.61.3-O) stækkar til vesturs og norðurs, efri mörk svæðisins verða við fjallgirðingu og norðurmörk við Hlíðarfjallsveg.

Tillagan var auglýst frá 21. ágúst til 2. október 2013.

Engin athugasemd barst.

Aðalskipulagsbreytingarnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindanna.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

23. október 2013

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan