Auglýsing um niðurstöðu bæjarstjórnar í skipulagsmálum

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur samþykkt eftirfarandi deiliskipulög:

Breyting á deiliskipulagi Dalsbrautar sunnan Þingvallastrætis og nágrenni

Svæðið sem deiliskipulagið nær til er götu­stæði Dalsbrautar frá Þingvallastræti í norðri að Miðhúsabraut í suðri ásamt nokkrum fullbyggðum íbúðasvæðum sem liggja að götu­stæðinu.

Tillagan var auglýst frá 12. september til 24. október 2012. Sex athugasemdir bárust sem leiddu til breytinga á skipulaginu, m.a. lengingu á hljóðmönum.

Deiliskipulag Hlíðahverfis, suðurhluti

Skipulagssvæðið afmarkast í suðri af opnu svæði norðan við Glerá, í vestri af lóð Glerárskóla, í norðri af Undirhlíð og opnu svæði norðan Áshlíðar og í austri af Hörgárbraut.

Tillagan var auglýst frá 19. september til 31. október 2012. Sex athugasemdir bárust sem leiddu til breytinga á skipulaginu, m.a. er gert ráð fyrir að ekki verði gegnumakstur frá Höfðahlíð um lóð N1.

Breytingar á skipulagi hafa tekið gildi með auglýsingum í B-deild Stjórnartíðinda.

Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Bent er á kærufrest skv. 5. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

5. desember 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan