Skipulagsstofnun staðfesti þann 11. september 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar þann 22. ágúst 2013. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst þann 26. ágúst 2013. Í breytingunni felst
að opið svæði til sérstakra nota 3.21.7 O minnkar um 2,8 ha með stækkun íbúðarsvæðis 3.21.1 Íb ásamt tilfærslu marka
íbúðarsvæðisins. Skilgreiningu hins opna svæðis er breytt úr íþróttasvæði í útivistarsvæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 11. september 2013.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson.
B-deild - Útgáfud.: 25. september 2013