Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal, samþykkta í bæjarstjórn þann 9. júní 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Skipulagssvæðið til nær lóðar Bílaklúbbs Akureyrar (BA) við Hlíðarfjallsveg. Með deiliskipulagsbreytingu þessari verður lóðinni skipt upp í fjórar lóðir. Lóð nr. 7 fyrir bílastæði verður sameignarlóð, lóð nr. 9 verður fyrir viðgerðar og þjónustuhús, lóð nr. 11 fyrir æfinga- og keppnissvæði og nr. 13 fyrir klúbbhús BA.
Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 10. júní til 22. júlí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal - uppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 22. júlí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
10. júní 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar