Æfingasvæði við Skarðshlíð. Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi æfingasvæðis við Skarðshlíð, samþykkta í bæjarstjórn 17. febrúar 2009.

Deiliskipulagssvæðið liggur milli Skarðshlíðar og Hörgárbrautar. Skilgreind eru lóðarmörk æfingasvæðis fyrir frjálsar íþróttir sem stækkar núverandi íþróttasvæði Þórs handan Skarðshlíðar. Ekki er gert ráð fyrir varanlegum byggingum á svæðinu. Lóð nr. 46 við Skarðshlíð minnkar um 1182 m2 og er sá hluti felldur inn í æfingasvæðið.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 4. mars til 15. apríl 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.

Æfingasvæði við Skarðshlíð - deiliskipulagsuppdráttur

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem afmarkað er opið svæði til sérstakra nota norðan Skarðshlíðar.

Athugasemdafrestur hennar er frá 4. mars til 15. apríl 2009. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 15. apríl 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

4. mars 2009

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan