Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 2. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 5. maí 2009.
Tillagan felur í sér að minniháttar breyting er gerð á afmökun hafnarsvæðis 2.11.19 H, vestan Oddeyrarskála við Strandgötu. Opið svæði þar vestan við breytist að sama skapi.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 3. júní til 24. júní svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem skilgreind er ný lóð og byggingarreitur fyrir aðstöðuhús vegna komu skemmtiferðaskipa að Oddeyrarbryggju. Athugasemdafrestur deiliskipulagsbreytingarinnar er frá 3. júní til 15. júlí 2009.
Hafnarsvæði við Oddeyrarbryggju - aðalskipulagsuppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 24. júní 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
3. júní 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar