Utanhússmálun og múrviðgerðir 2025

Málsnúmer 2025031427

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 182. fundur - 01.04.2025

Lagt fram minnisblað dagsett 28. mars 2025 vegna opnunar tilboða í utanhússmálun og múrviðgerðir á Brekkuskóla, Giljaskóla og Kiðagili sumarið 2025. Tilboð bárust frá fjórum aðilum í ofantalin verk.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboða og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningum við Dragan Pavlica vegna Brekkuskóla og Giljaskóla og við Málningarfélagið ehf. vegna Kiðagils.