Ægisnes 3 - umsókn um skipulag

Málsnúmer 2025021074

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 440. fundur - 26.02.2025

Erindi dagsett 21. febrúar 2025 þar sem Ómar Ívarsson f.h. Íslenska gámafélagsins ehf. sækir um að breyta deiliskipulagi vegna Ægisness 3. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit til vesturs.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið með minni háttar breytingu sem varða kvaðir um girðingu á lóðarmörkum í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir Sjafnarnes. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Sjafnarness 2 og umhverfis- og mannvirkjasviði.


Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.