Höfðamói 10-16 - úthlutun lóðar

Málsnúmer 2025021004

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 440. fundur - 26.02.2025

Katla ehf. byggingarfélag átti hæsta tilboð í lóðina Höfðamóa 10-16 og hefur verið staðfest að hæstbjóðandi vill halda lóðinni. Félagið hefur skilað inn tilskildum gögnum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.


Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.