Laufásgata 11 - umsókn um skipulag

Málsnúmer 2025020998

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 440. fundur - 26.02.2025

Erindi dagsett 20. febrúar 2025 þar sem BB byggingar ehf. sækja um að gera breytingu á deiliskipulagi vegna Laufásgötu 11. Breytingin felur í sér stækkun byggingarreits til norðurs og vesturs.
Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis. Að mati ráðsins er slík breyting óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Hjalteyrargötu 10 og Laufásgötu 9. Skipulagsráð samþykkir jafnframt að sett verði kvöð um girðingu á lóðarmörkum.