Samningur Akureyrarbæjar og Menningarfélags Akureyrar 2025-2027

Málsnúmer 2025020177

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3879. fundur - 06.02.2025

Lagt fram til samþykktar samkomulag um tímabundna framlengingu á samningi Akureyrarbæjar og Menningarfélags Akureyrar (MAk) sem rann út í árslok 2024. Samkomulagið gildir í 4 mánuði og markmið með því er að tryggja rekstrarframlög til MAk á meðan Akureyrarbær og ríkið ganga frá endurnýjun á samningi um samstarf um menningarmál, sem er grundvöllur fyrir því að gerður verði nýr samningur milli Akureyrarbæjar og MAk.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs og Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samkomulag um tímabundna framlengingu samnings Akureyrarbæjar og Menningarfélags Akureyrar um framlög til starfsemi félagsins.