Ályktun frá stjórn Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi til Akureyrarbæjar og Norðurorku

Málsnúmer 2025020061

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3879. fundur - 06.02.2025

Lagt fram erindi dagsett 30. janúar 2025 frá Ármanni Ketilssyni f.h. Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi varðandi aðstöðu byggingarverktaka við uppbyggingu Móahverfis.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs, Pétur Ingi Haraldsson sviðsstjóri skipulagssviðs og Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sátu fund bæjarráðs. Einnig sátu fundinn undir þessum lið Eyþór Björnsson forstjóri Norðurorku, Hjalti Steinn Gunnarsson sviðsstjóri framkvæmdasviðs Norðurorku og Þórir Guðmundsson sameiginlegur verkefnastjóri Norðurorku og Akureyrarbæjar.

Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Ásrún Ýr Gestsdóttir þennan lið í gegnum fjarfundarbúnað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara ályktun frá Meistarafélagi byggingamanna.