Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2024

Málsnúmer 2025010916

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3877. fundur - 23.01.2025

Kynntar niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2024.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð fagnar góðri niðurstöðu og telur mikilvægt að fá fram viðhorf bæjarbúa til þjónustu sveitarfélagsins og þakkar þátttakendum fyrir mikilvægt framlag. Bæjarráð beinir því til sviða og ráða að taka niðurstöður könnunarinnar til umfjöllunar og úrvinnslu.

Skipulagsráð - 438. fundur - 29.01.2025

Lögð fram til kynningar niðurstaða þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2024.

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 67. fundur - 12.02.2025

Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2024 kynntar.

Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Á fundinum kom fram vilji til að halda stórþing í Birtu og Sölku, fyrir eldri borgara nú strax í vor og sviðsstjórum velferðarsviðs og fræðslu- og lýðheilsusviðs falið að vinna að framgangi þess í samvinnu við EBAK.

Velferðarráð - 1399. fundur - 12.02.2025

Lögð fram til kynningar niðurstaða þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2024.

Anna Marit Níelsdóttir þjónustustjóri og Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð óskar eftir að í næstu könnun verði bætt við ítarspurningum um þjónustu sveitarfélagsins við eldri borgara og fatlað fólk.