Biðsvæði fyrir leigubíla í miðbæ Akureyrar

Málsnúmer 2025010678

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 437. fundur - 15.01.2025

Breytt lög um leigubílaakstur tóku gildi í apríl árið 2023 sem hafa þau áhrif að ekki eru lengur fjöldatakmarkanir á atvinnuleyfum eins og áður var. Nýlega hafa borist fyrirspurnir um hvort að í miðbæ Akureyrar séu til staðar stæði þar sem leigubílar geta beðið eftir viðskiptavinum, sérstaklega um helgar.
Að mati meirihluta skipulagsráðs gæti núverandi biðsvæði SVA við Hofsbót hentað vel sem biðsvæði fyrir leigubíla eftir að strætó hættir að ganga á kvöldin. Væri það þó eingöngu til bráðabirgða þar til lóðinni er úthlutað og framkvæmdir hefjast. Er skipulagsfulltrúa falið að óska eftir umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs um málið.


Helgi Sveinbjörn Jóhannsson M-lista situr hjá við afgreiðslu.