Goðanes/Baldursnes - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2024121390

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 437. fundur - 15.01.2025

Erindi dagsett 18. desember 2024 þar sem að Grétar Ómarsson fh. Mílu ehf. óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir 4 metra löngum skurði á gatnamótum Goðaness og Baldursness til að geta tengt saman ídráttarör að norðanverðu í Goðanesi.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Hafa skal samráð við umhverfis- og mannvirkjasvið um framkvæmdina.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.