Hrafnagilsstræti 8 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024100642

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 999. fundur - 09.01.2025

Erindi dagsett 17. október 2024 þar sem Ingvar Ívarsson f.h. Baldvins Más Hermannssonar og Margrétar Ástu Ívarsdóttur sækir um að tvöfalda bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús nr. 8 við Hrafnagilsstræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.