Heilsugæsla suður - útfærsla

Málsnúmer 2024020334

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 440. fundur - 26.02.2025

Lögð fram til kynningar tillaga að afmörkun nýrrar lóðar á svæði sunnan við lóð Kjarnagötu 2 (Bónus). Er tillagan sett fram sem möguleiki á staðsetningu heilsugæslustöðvar ef þær tillögur á staðsetningu sem hafa verið í undirbúningi ganga ekki upp.
Skipulagsráð tekur jákvætt í fyrirliggjandi tillögu og felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við gerð breytinga á deiliskipulagi svæðisins til samræmis við hana þar sem sérstök áhersla verður lögð á umferðarflæði.