Yfirlit frétta

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Heimir Örn Árnason formaður bæjarráðs og Ján Danko borgarstjóri í Martin undirrita samkomulagið.

Samkomulag um vináttusamband við borgina Martin í Slóvakíu

Undirritað hefur verið samkomulag um vináttusamband Akureyrarbæjar og borgarinnar Martin í Slóvakíu.
Lesa fréttina Samkomulag um vináttusamband við borgina Martin í Slóvakíu
Tjón á yfirbyggingu Töfrateppisins í fárviðri

Tjón á yfirbyggingu Töfrateppisins í fárviðri

Yfirbygging Töfrateppisins í Hlíðarfjalli skemmdist talsvert í miklum vindhviðum aðfararnótt þriðjudagsins 21. nóvember. Gefið hafði verið út af framleiðanda að yfirbyggingin gæti staðið af sér vind upp á 46 m/s og vindhviður upp á 51 m/s. Það reyndist hins vegar ekki alls kostar rétt því umrædda nótt náði vindurinn mest 39 m/s en stóð yfir í rúmar 4 klukkustundir. Talað er um fárviðri þegar vindur nær meiru en 32,7 m/s.
Lesa fréttina Tjón á yfirbyggingu Töfrateppisins í fárviðri
Ungir hönnuðir í Listasafninu á Akureyri. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.

Hönnun í Listasafninu

Fyrir stuttu fór fram önnur listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - Listvinnustofur barna árið 2023 í Listasafninu á Akureyri. Friðrik Steinn Friðriksson, vöru- og upplifunarhönnuður, bauð ungmennum á aldrinum 12 til 15 ára að skapa módel af húsgögnum sem bæði eru mini útgáfa af venjulegum hlutum og skref í átt að því að smíða í fullri stærð.
Lesa fréttina Hönnun í Listasafninu
Frískápur við Amtsbókasafnið á Akureyri.

Myndarlegt skýli utan um frískápinn við Amtið

Nú eru um tvö ár síðan frískápurinn við Amtsbókasafnið var opnaður og hann hefur svo sannarlega verið vel nýttur. Þar er alltaf eitthvað ókeypis á boðstólum og fólk vitjar skápsins alla daga og á öllum tímum sólarhringsins.
Lesa fréttina Myndarlegt skýli utan um frískápinn við Amtið
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar, …

Akureyrarbær og Grófin taka höndum saman

Í dag var undirritaður nýr samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Grófarinnar geðræktar um þjónustu Grófarinnar á Akureyri.
Lesa fréttina Akureyrarbær og Grófin taka höndum saman
Mynd: Dagný Reykjalín/Blekhonnun.is

Kveikjum ljósin á jólatrénu okkar

Hátíðleg stund verður á Ráðhústorginu á laugardag þegar ljósin verða tendruð á jólatré bæjarbúa.
Lesa fréttina Kveikjum ljósin á jólatrénu okkar
Norðurgata 3-7. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar

Norðurgata 3-7. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðum 3, 5 og 7 við Norðurgötu.
Lesa fréttina Norðurgata 3-7. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar
Velferðarsvið lokað eftir hádegi 23. nóvember

Velferðarsvið lokað eftir hádegi 23. nóvember

Velferðarsvið verður lokað eftir hádegi fimmtudaginn 23. nóvember.
Lesa fréttina Velferðarsvið lokað eftir hádegi 23. nóvember
Grímseyjarkirkja. Mynd Sigurður Henningsson

Bjart yfir Grímsey í skammdeginu

Mikið er um að vera í Grímsey að undanförnu og íbúum fjölgar.
Lesa fréttina Bjart yfir Grímsey í skammdeginu
Frá námskeiðinu í Brekkuskóla.

Fjórir skólar hlutu viðurkenningu UNICEF sem Réttindaskólar

Miðvikudaginn 15. nóvember var haldið í Brekkuskóla fjölmennt námskeið um skóla- og frístundastarf í þágu réttinda barna. Starfsfólk UNICEF skipulagði námskeiðið sem haldið var í samstarfi við fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar. Námskeiðið var sérstaklega ætlað kennurum og starfsfólki í skólum og frístundastarfi Akureyrarbæjar. Námskeiðið var mjög vel sótt, en um 70 starfsmenn tóku þátt í deginum.
Lesa fréttina Fjórir skólar hlutu viðurkenningu UNICEF sem Réttindaskólar
Strætósinfónía Egils Andrasonar, sumarlistamanns Akureyrarbæjar 2023.

Sækir þú um?

Minnt er á að frestur til að skila inn umsóknum til Menningarsjóðs Akureyrar fyrir árið 2024 rennur út á miðnætti miðvikudaginn 22. nóvember nk.
Lesa fréttina Sækir þú um?