Yfirlit frétta

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Tillaga að breyttu deiliskipulagi

Strandgata 11B - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á skipulagi fyrir Strandgötu 11B með 11 samhljóða atkvæðum og að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Lesa fréttina Strandgata 11B - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Gránufélagsgata 22 - Lóð laus til úthlutunar

Gránufélagsgata 22 - Lóð laus til úthlutunar

Laus til úthlutunar, Gránufélagsgata 22
Lesa fréttina Gránufélagsgata 22 - Lóð laus til úthlutunar
Bíladagar hefjast á fimmtudaginn

Bíladagar hefjast á fimmtudaginn

Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Aflinu, Bílaklúbbi Akureyrar, Berginu Headspace, lögreglu, slökkviliði, Kvennaathvarfi Akureyrar og tjaldsvæðinu að Hömrum funduðu nýverið um Bíladaga 2024 sem hefjast fimmtudaginn 13. júní og lýkur formlega mánudaginn 17. júní með bílasýningu í Boganum. Vart hefur orðið við glannaakstur á Bíladögum fyrri ára en slíkur akstur er ólöglegur og samræmist engan veginn siðareglum Bíladaga sem höfuðáhersla verður lögð á sem fyrr að allir virði. Hart verður tekið á þeim brotum sem kunna að koma upp og gildir þá einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.
Lesa fréttina Bíladagar hefjast á fimmtudaginn
Lokanir vegna malbikunar Þórunnarstrætis og Miðhúsabrautar

Lokanir vegna malbikunar Þórunnarstrætis og Miðhúsabrautar

Syðsti kafli Þórunnarstrætis verður lokaður frá kl. 18 í dag, mánudaginn 10. júní, og fram eftir degi á morgun vegna malbikunar.
Lesa fréttina Lokanir vegna malbikunar Þórunnarstrætis og Miðhúsabrautar
Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands, og Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins, skoða…

Sendiherra Þýskalands opnaði sýningu á Íslandskortum

Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, opnaði sýninguna Einstök Íslandskort 1535-1849 – Schulte landakortin á Minjasafninu á Akureyri í gær.
Lesa fréttina Sendiherra Þýskalands opnaði sýningu á Íslandskortum
Námskeið í félagsfærni fyrir unglinga haldið á velferðarsviði

Námskeið í félagsfærni fyrir unglinga haldið á velferðarsviði

Velferðarsvið Akureyrarbæjar stóð í síðustu viku fyrir svokölluðu PEERS-námskeiði í félagsfærni fyrir unglinga á aldrinum 13 til 15 ára. PEERS stendur fyrir Program for the Education and Enrichment of Relational Skills sem gæti útlagst á íslensku sem Uppfræðsla og efling félagsfærni.
Lesa fréttina Námskeið í félagsfærni fyrir unglinga haldið á velferðarsviði
Strandhreinsun við Eyjafjörð

Strandhreinsun við Eyjafjörð

Á hverjum degi skolar tonnum af rusli á fjörur um allan heim en almenningur getur sannarlega lagt sitt af mörkum til að minnka þann skaða sem þetta veldur.
Lesa fréttina Strandhreinsun við Eyjafjörð
Stuðningsfjölskyldur óskast

Stuðningsfjölskyldur óskast

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir fjölskyldum eða einstaklingum til að taka að sér börn, tvo eða fleiri daga í mánuði.
Lesa fréttina Stuðningsfjölskyldur óskast
Mynd frá Listasumri 2023.

Listasumar hefst á morgun!

Á morgun, fimmtudaginn 6. júní, hefst Listasumar 2024 og stendur hátíðin til 20. júlí. Nóg er um að vera næstu daga og vert er að nefna að flestir viðburðir Listasumars eru ókeypis. Yfirlit yfir alla viðburði og smiðjur Listasumars má finna á www.listasumar.is.
Lesa fréttina Listasumar hefst á morgun!
Auga hvalsins eftir Franz Wulfhagen.

Tvær opnanir og grænlenskir örtónleikar í Listasafninu

Fimmtudaginn 6. júní kl. 20 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri: Samsýningin Er þetta norður? og Fluxus sýningarverkefnið STRANDED – W(H)/ALE A REMAKE PORTFOLIO – MORE THAN THIS, EVEN.
Lesa fréttina Tvær opnanir og grænlenskir örtónleikar í Listasafninu
Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla, Akureyri - Lóð nr. 6 stofnuð á ný.

Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla, Akureyri - Lóð nr. 6 stofnuð á ný.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Rangárvelli, Akureyri - Breytingin felur í sér að lóð nr. 6 verði stofnuð á ný.
Lesa fréttina Breyting á deiliskipulagi Rangárvalla, Akureyri - Lóð nr. 6 stofnuð á ný.