Loftmynd sem sýnir staðhætti. Gul útlína afmarkar svæðið sem breytingin nær til.
Unnið er að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 fyrir Hafnarstræti 16, þar sem fyrirhuguð er stækkun íbúðarsvæðis fyrir búsetukjarna. Skipulagsbreytingin felur í sér að íbúðarsvæði ÍB1 stækkar um 0,5 ha. sunnan lóðar við Hafnarstræti 16 og opið svæði OP2 minnkar sem því nemur.
Tekin hefur verið saman lýsing á skipulagsverkefninu og er hún aðgengileg hér. Einnig er hægt að nálgast skipulagslýsinguna í þjónustuveri Akureyrarbæjar í Ráðhúsi, Geislagötu 9.
Athugasemdir, þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram, er hægt að senda með tölvupósti á netfangið skipulagssvid@akureyri.is eða skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, innan tveggja vikna frá auglýsingu þessari, eða til 27.október 2021.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ. Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.