MILLI ÞESS AÐ KOMAST YFIR OG LIFA VIÐ LIGGUR HUNDURINN GRAFINN
Steinunn Sigurðardóttir fjallar um skáldsögur sínar Jójó og Fyrir Lísu í ljósi nýrra afhjúpana um barnaníð á Íslandi, í Hofi fimmtudaginn 14. mars kl 17:00.
Um leið og Steinunn Sigurðardóttir fer yfir sköpunarsögu skáldsaganna tveggja, kemur hún einnig inn á tengslin við íslenskan veruleika og nýlegar afhjúpanir um kynferðisbrot, gegn drengjum sérstaklega.
Hvaða erindi eiga tveir Berlínarbúar, þýskur geislalæknir og franskur róni, sem aðalpersónur í íslenska skáldsögu? Hvernig datt Steinunni Sigurðardóttur í hug - eftir að hafa sent frá sér Reykjavíkurskáldsögur með ívafi ljóða eins og Tímaþjófinn og Sólskinshest, íslenska ferðasögu fjögurra kvenna, eins og Hjartastað - að fjalla um sameiginlega lífsreynslu og vináttu Martins læknis og Martins róna í Berlín? En þeir reynast vera þjáningarbræður sem glíma báðir við afleiðingar af því að hafa verið gert mein þegar þeir voru börn.
12.03.2013 - 14:06
Lestrar 882