Álfabækur - engu líkar...
Elfbooks Elfenbücher Elfebøger Livres des elfes -
Opnun föstudaginn 28. júní kl. 12:00 - Allir hjartanlega velkomnir!
Amtsbókasafninu er heiður af því að verða fyrst til að setja upp sýningu á myndverkum Guðlaugs Arasonar. Sýningin samanstendur af litlum bókaskápum fullum af örsmáum, þekktum, íslenskum sem erlendum, bókum. Hver bókaskápur er heimur útaf fyrir sig og þar búa bæði skáld og ýmsar kynjaverur. Bækurnar kallar Guðlaugur álfabækur og segja má að hér sé um nýja tegund myndlistar að ræða.
Sýningin stendur yfir 28. júní til 31. ágúst - Opið alla virka daga kl. 10:00-19:00
28.06.2013 - 09:00
Lestrar 1216