Fréttasafn

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Þjónandi leiðsögn -  Ráðstefna í september

Þjónandi leiðsögn - Ráðstefna í september

Í 3. tbl. 2016 (76. árg.) tímaritsins Sveitarstjórnarmál rita Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar og Kristinn Már Torfason forstöðumaður Þrastarlundar og sambýlis að Jörvabyggð hjá búsetudeild og varaforseti Alþjóðasamtaka þjónandi leiðsagnar, grein um áherslur þjónandi leiðsagnar og alþjóðlega ráðstefnu sem haldin verður á Akureyri 13. til 15. september 2016.
Lesa fréttina Þjónandi leiðsögn - Ráðstefna í september

Heilsupistill um hreyfingu í sumarfríinu

Heilsuvernd hefur sent frá sér heilsupistil júlí mánaðar og að þessu sinni er umfjöllunarefnið hreyfing í sumarfríinu. Bent er á nokkrar skemmtilegar leiðir til að stunda hreyfingu í sumarfríinu. Endilega kynnið ykkur þessa stuttu samantekt.
Lesa fréttina Heilsupistill um hreyfingu í sumarfríinu
Öldrunarheimili Akureyrarbæjar auglýsa eftir körlum til umönnunarstarfa

Öldrunarheimili Akureyrarbæjar auglýsa eftir körlum til umönnunarstarfa

Öldrunarheimili Akureyrarbæjar (ÖA) auglýsa nú sérstaklega eftir karlmönnum til umönnunarstarfa. Markmið ÖA er að leiðrétta ójafnt kynjahlutfall starfsmanna á ÖA en karlkyns starfsmenn eru þar í miklum minnihluta.
Lesa fréttina Öldrunarheimili Akureyrarbæjar auglýsa eftir körlum til umönnunarstarfa
Sumarhátíð vinnuskólans

Sumarhátíð vinnuskólans

Vinnuskólanemar gerðu sér glaðan dag í Kjarnaskógi 7. júlí síðastliðinn. Það var ýmislegt brallað í skóginum fagra. Þar var keppt í strandblaki, stígvélasparki, kubb og þrautaboðhlaupum.
Lesa fréttina Sumarhátíð vinnuskólans
Laun greidd út föstudaginn 29. júlí

Laun greidd út föstudaginn 29. júlí

Samþykkt hefur verið að flýta útborgun um næstu mánaðarmót. Ef farið væri eftir ákvæðum kjarasamninga eins og venjulega yrðu laun starfsmanna Akureyrarbæjar greidd þriðjudaginn 2. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni verða laun greidd fyrir verslunarmannahelgi þ.e. föstudaginn 29. júlí næstkomandi.
Lesa fréttina Laun greidd út föstudaginn 29. júlí

Heilsupistill um sólarofnæmi

Heilsuvernd hefur sent frá sér heilsupistil júnímánaðar og að þessu sinni er umfjöllunarefnið sólarofnæmi. Farið er yfir hver helstu einkenni eru, helstu áhættuþætti og hvað sé til ráða
Lesa fréttina Heilsupistill um sólarofnæmi